image
image

Málflutningskeppni um EES-rétt í Hæstarétti

17.03.2026

Dagana 14. og 15. mars fór fram í Hæstarétti málflutningskeppni laganema um EES-rétt. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) stendur árlega fyrir þessari keppni í samstarfi við helstu háskóla á Íslandi og í Noregi. Keppnin fer fram til skiptis í löndunum. Að þessu sinni tóku þátt sautján lið frá Háskólanum í Björgvin, tvö lið frá Háskólanum í Reykjavík og eitt lið frá Háskólanum í Ósló.

Sigurlið keppninnar kom frá Háskólanum í Björgvin og var skipað Christian Espeseth, Felix Håkonsen Nessøe, Håvar Espe, Ida Rygg Krüger-Olsen og Olav Hegdahl en hann var valinn besti ræðumaður keppninnar.

Í úrslitaviðureigninni sátu eftirtalin í dómi: Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar Íslands, Árni Páll Árnason, varaforseti ESA, Fernando Castillo de la Torre, yfirlögfræðingur samkeppnis- og samrunamála hjá lögfræðiþjónustu framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins, Helga Melkorka Óttarsdóttir, lögmaður og eigandi á lögmannsstofunni LOGOS, Margrét Einarsdóttir, prófessor og stjórnarformaður Samkeppniseftirlitsins, Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, Dóra Sif Tynes, lögmaður og eigandi á lögmannsstofunni ADVEL og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri laga- og framkvæmdasviðs hjá ESA. Tímavörður úrslitaviðureignarinnar var Hildur Hjörvar, lögmaður hjá ESA.

Myndirnar voru teknar við þetta tækifæri.