Um Hæstarétt

Hæstiréttur Íslands, æðsti dómstóll þjóðarinnar, 
var stofnaður með lögum nr. 22/1919 og tók formlega til starfa 16. febrúar 1920.

Hæstiréttur fer með æðsta dómsvaldið og er fordæmisgefandi dómstóll. Einungis er hægt að áfrýja málum til Hæstaréttar að uppfylltum ströngum skilyrðum. Í Hæstarétti eiga sæti sjö dómarar. Fimm dómarar taka þátt í meðferð máls hverju sinni, en þó sjö í sérlega mikilvægum málum. Þrír dómarar taka að jafnaði ákvörðun um áfrýjunarleyfi og um hvort kæra verði tekin til meðferðar.

Sjá nánar um skipun Hæstaréttar í lögum um dómstóla nr. 50/2016 og um málsmeðferðina í lögum um meðferð einkamála og lögum um meðferð sakamála.

Forseti Hæstaréttar er Benedikt Bogason.


Hæstiréttur Íslands
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Sími: 510 3030 
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 8.30 - 12.00 og 13.00 - 16.00 mánudaga til fimmtudaga og kl. 8.30-12.00 á föstudögum.

Hlekk á þjónustugátt réttarins fyrir áfrýjunarleyfisbeiðnir má finna hér og skjalagátt til framlagningar annarra gagna má finna hér


Kt. 650169-4419
Reikn. nr. 0101-26-69580