Heimsókn norrænna laganema

16.02.2026

Í liðinni viku tók Hæstiréttur á móti norrænum laganemum og íslenskum gestgjöfum þeirra. Þau voru stödd hér á landi í tilefni af norrænni laganemaviku og árshátíðar Orators, félags laganema við Háskóla Íslands. Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri, og Hrafnkell Oddi Guðjónsson aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim og kynntu starfsemi réttarins. Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri.