Heimsókn laganema í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands
10.02.2026
Í dag fékk Hæstiréttur heimsókn frá laganemum á 1. ári í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. Með þeim mættu kennarar þeirra Hafsteinn Þór Hauksson dósent og Kári Hólmar Ragnarsson dósent. Á móti gestunum tóku Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar, Björg Thorarensen hæstaréttardómari og Guðmundur Snæbjörnsson aðstoðarmaður hæstaréttardómara. Gerðu þau grein fyrir starfsemi réttarins og svöruðu fyrirspurnum. Myndin var tekin við þetta tilefni.
