Heimsókn frá kennurum og nemendum við sumarskóla Cumberland School of Law við Samford University í Bandaríkjunum

26.06.2025

Í vikunni tók Hæstiréttur á móti kennurum og nemendum við sumarskóla Cumberland Shool of Law við Samford University í Alabama. Á meðal gesta var Blake Hudson, forseti lagadeildar Cumberland School of law, Brigham Daniels prófessor við University of Utah, Clark Hultquist prófessor við University of Montevallo í Alabama og Tona M. Hitson, sem annast alþjóðleg samskipti á vegum Cumberland School of Law. Á móti gestunum tóku Benedikt Bogason forseti réttarins, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri og Linda Ramdani aðstoðarmaður dómara og kynntum þeim störf réttarins og gerðu grein fyrir íslenskri dómstólaskipan. Myndin var tekin við þetta tækifæri.