Heimsókn frá EFTA-dómstólnum
12.06.2025Í vikunni heimsóttu Hæstarétt Páll Hreinsson forseti EFTA-dómstólsins og Ólafur Jóhannes Einarsson skrifstofustjóri dómstólsins. Á fundi með dómurum Hæstaréttar og öðru starfsfólki sögðu þeir frá því helsta sem er á döfinni hjá EFTA-dómstólnum og ræddu það sem efst er á baugi á vettvangi EES-samningsins. Á meðfylgjandi mynd sem tekin var við þetta tækifæri sést Páll Hreinsson afhenda Benedikt Bogasyni forseta Hæstaréttar, eintak af nýútgefnu riti hans, Stjórnsýsluréttur málsmeðferð, en ritið kom nýlega út í 2. útgáfu.