Ráðstefna Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir tengiliði æðstu dómstóla

10.06.2025

Dagana 5.-6. júní hélt Mannréttindadómstóll Evrópu árlega ráðstefnu fyrir tengiliði æðstu dómstóla aðildarríkja Evrópuráðsins. Af hálfu Hæstaréttar sótti Linda Ramdani aðstoðarmaður dómara ráðstefnuna og af hálfu Landsréttar Sigfríð Elín Þorvaldsdóttir aðstoðarmaður dómara. Hæstiréttur Íslands er hluti af Superior Courts Network sem Mannréttindadómstólinn setti á fót árið 2015 til að geta átt í skilvirkari samskiptum við dómstóla aðildarríkja. Í ár var því jafnframt haldið upp á að 10 ár eru síðan samstarf Mannréttindadómstólsins og innlendra dómstóla hófst í gegnum það. Af því tilefni var gefið út afmælisrit og það fært dómstólum aðildarríkjanna að gjöf. Mannréttindadómstóllinn sendir reglulega beiðnir um útskýringar á innlendri löggjöf og framkvæmd vegna samanburðarrannsókna og að sama skapi geta dómstólar aðildarríkjanna sent upplýsingabeiðnir til Mannréttindadómstólsins.

Ráðstefnan í ár fjallaði um samstarfið í gegnum Superior Courts Network, uppruna þess og reynslu dómstóla sem eiga aðild að því. Þá var þátttakendum skipað í vinnuhópa þar sem fjallað var um framtíð samstarfsins og frekari samvinnu á vettvangi þess. Diljá Catherine Þiðriksdóttir lögfræðingur hjá dómstólnum tók einnig á móti íslensku tengiliðunum.