Heimsókn frá kennurum og nemendum við sumarskóla lagadeildar Ohio Northern University í Bandaríkjunum.

02.06.2025

Í liðinni viku fékk Hæstiréttur heimsókn frá nemendum og kennurum við sumarskóla lagadeildar Ohio Northern University í Bandaríkjunum. Á meðal gesta voru Melissa Baumann rektor háskólans og Charles Rose forseti lagadeildar skólans. Á móti gestunum tóku Benedikt Bogason forseti réttarins, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri og Jenný Harðardóttir aðstoðarmaður dómara. Á þessu ári er því fagnað að lagadeild Háskóla Íslands og lagadeild Ohio Northern hafa átt samstarf í 65 ár sem felst í gagnkvæmum árlegum heimsóknum nemenda. Af hálfu Íslands hafði prófessor Ármann Snævarr, síðar rektor og hæstaréttardómari, forgöngu um að efna til samstarfsins en hann varð heiðursdoktor við skólann í Ohio 1973. Við útskrift nemenda hjá lagadeild Ohio Northern 17. maí sl. var Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við háskólann. Á liðnum árum hefur nemendunum Ohio Northern, sem hafa komið til landsins verið boðið í heimsókn til Hæstaréttar þar sem þeir hafa fengið kynningu á störfum réttarins og íslenskri dómstólaskipan. Myndin var tekin við þetta tækifæri.