Heimsókn frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
28.10.2024Nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ásamt kennara sínum, Tinnu Ösp Arnardóttur, komu í heimsókn í Hæstarétt 17. október síðastliðinn. Sigurður Tómas Magnússon, varaforseti Hæstaréttar og Guðmundur Snæbjörnsson aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim, kynntu starfsemi réttarins og svöruðu spurningum. Myndin var tekin við þetta tækifæri.