![image](/library/Frettamyndir/Norrænir laganemar 15. febrúar 2024 heimsókn.jpg?proc=NewsImage)
![image](/library/Frettamyndir/Norrænir laganemar 15. febrúar 2024 hópmynd.jpg?proc=NewsImage)
Heimsókn norrænna laganema
16.02.2024Í vikunni tók Hæstiréttur á móti norrænum laganemum og íslenskum gestgjöfum þeirra en þau eru stödd hér á landi í tilefni af norrænni laganemaviku og árshátíðar Orators, félags laganema við Háskóla Íslands. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri, Jenný Harðardóttir og Guðmundur Snæbjörnsson aðstoðarmenn dómara, tóku á móti þeim, kynntu þeim starfsemi réttarins og svöruðu fyrirspurnum.