Vefurinn á ensku

14.11.2023

Hæstiréttur hefur endurskoðað og aukið við efni um réttinn á heimasíðunni á ensku. Þar er að finna almenna og knappa lýsingu á starfsemi réttarins auk ágrips af sögu hans. Einnig er lýsing á dómhúsinu með myndum. Þá eru upplýsingar um dómarana og þar verða reifanir á völdum dómum sem geta vakið athygli út fyrir landsteinana.
Efni þetta má nálgast hér