Heimsókn frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

11.10.2023

Nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ásamt kennara sínum, Tinnu Ösp Arnardóttur, komu í heimsókn í Hæstarétt í vikunni. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, og Linda Ramdani, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim, kynntu starfsemi réttarins og réttarkerfið og tóku við spurningum.

Meðfylgjandi mynd var tekin við heimsóknina.