image
image

Heimsókn frá the Harvard Advanced Leadership Coalition Group

11.09.2023

Föstudaginn 8. september sl. fékk Hæstiréttur heimsókn frá the Harvard Advanced Leadership Coalition Group en sendiherra Bandaríkjanna Carrin F. Patman tók þátt í heimsókninni. Benedikt Bogason forseti réttarins, Björg Thorarensen, hæstaréttardómari, og Ólöf Finnsdóttir, skrifstofustjóri Hæstaréttar, kynntu starfsemi réttarins, gerðu grein fyrir íslenskum rétti og svöruðu fyrirspurnum. Myndirnar voru teknar af hópnum við þetta tækifæri.