Norræn ráðstefna á Íslandi

11.04.2023

Dagana 27. og 28. mars var haldin norræn ráðstefna æðstu dómstóla á Norðurlöndum á Hótel Grímsborgum í Grímsnesi. Dómarar frá öllum dómstólunum sóttu ráðstefnuna en þátttakendur á henni voru 34. Á ráðstefnunni voru rædd sameiginleg málefni dómstólanna og það sem er efst á baugi í starfsemi þeirra. Einnig var erindi frá hverju landi um málefni sem hefur þýðingu í norrænu samhengi. Myndirnar eru frá ráðstefnunni.