Ársskýrsla Hæstaréttar 2022

07.03.2023

Ársskýrsla Hæstaréttar fyrir árið 2022 er komin út. Í henni er að finna upplýsingar um starfsemi réttarins á liðnu ári. Einnig eru þar reifanir á helstu dómum sem gengu á árinu. Í skýrslunni er tölfræðileg samantekt með upplýsingum um fjölda mála eftir tegund þeirra, málsúrslitum og málsmeðferðartíma. Á árinu gengu 60 dómar auk þess sem afgreiddar voru 167 beiðnir um málskot.

Ársskýrsluna má nálgast með því að smella hér.