Heimsókn frá hollenskum laganemum

16.02.2023

Í vikunni tók Hæstiréttur á móti hollenskum laganemum frá háskólanum í Groningen í Hollandi en þau eru stödd í kynnisferð hér á landi. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, og Gunnar Atli Gunnarsson, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim, kynntu þeim starfsemi réttarins og svöruðu fyrirspurnum.

 

Meðfylgjandi myndir voru teknar af þessu tilefni.