Heimsókn frá EFTA-dómstólnum

02.12.2022

Í gær fékk Hæstiréttur heimsókn frá Páli Hreinssyni forseta EFTA-dómstólsins og Ólafi Jóhannesi Einarssyni skrifstofustjóra dómstólsins. Á fundi með dómurum Hæstaréttar og öðru starfsfólki sögðu þeir frá því helsta sem er á döfinni hjá EFTA-dómstólnum. Meðfylgjandi mynd var tekin við það tækifæri.