Heimsókn frá Kvennaskólanum í Reykjavík og Fjölbraut við Ármúla

12.10.2022

Í vikunni fékk Hæstiréttur heimsókn frá nemendum og kennurum Kvennaskólans í Reykjavík og Fjölbraut við Ármúla. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, kynnti starfsemi réttarins og tók við spurningum í kjölfarið ásamt Gunnari Atla Gunnarssyni, aðstoðarmanni dómara.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin við heimsókn frá Fjölbraut við Ármúla.