image

Heimsókn frá stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)

09.06.2022

Í gær fékk Hæstiréttur heimsókn frá stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) en hana skipa Arne Røksund, Árni Páll Árnason og Stefan Barriga. Með í för voru Jónína Lárusdóttir og Melpo-Menie Joséphidès en þær eru báðar framkvæmdastjórar hjá stofnuninni. Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar tók á móti gestunum og kynnti þeim starfsemi réttarins. Myndin var tekin við þetta tækifæri.