Öldungadeild Lögfræðingafélags Íslands heimsækir Hæstarétt

01.04.2022

Miðvikudaginn 30. mars sl. heimsótti öldungadeild Lögfræðingafélags Íslands Hæstarétt ásamt Eyrúnu Ingadóttur framkvæmdastjóra félagsins. Forseti og varaforseti Hæstaréttar ásamt skrifstofustjóra tóku á móti gestunum. Tilgangur heimsóknarinnar var m.a. að fá kynningu á starfsemi og hlutverki Hæstaréttar í kjölfar þeirra breytinga sem urðu á dómskerfinu við stofnun Landsréttar.

Myndin var tekin af því tilefni.