image

Nýr skrifstofustjóri Hæstaréttar Íslands

13.04.2021

Ólöf Finnsdóttir hefur verið skipuð skrifstofustjóri Hæstaréttar frá 1. ágúst n.k. til 5 ára.

Ólöf lauk laganámi frá Háskóla Íslands árið 1988 og framhaldsnámi í lögfræði frá Cambridge University árið 2002.

Ólöf var framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar frá stofnun hennar árið 2017. Áður var hún framkvæmdastjóri dómstólaráðs á árunum 2011 til 2017 og skrifstofustjóri Héraðsdóms Reykjavíkur á árunum 2006 til 2011. 

Hæstiréttur býður Ólöfu velkomna til starfa.