Málflutningur í síðasta sinn fyrir þremur dómurum

Í dag urðu þau tímamót í sögu Hæstaréttar að mál var þar í síðasta sinn flutt fyrir þremur hæstaréttardómurum. Allt frá árinu 1973 hefur málflutningur í Hæstarétti ýmist verið fyrir þremur eða fimm dómurum en frá árinu 1979 hefur einnig verið gert ráð fyrir að í sérstaklega mikilvægum málum geti sjö dómarar tekið sæti í dómi. Samkvæmt hinni nýju dómstólaskipan sem tók gildi 1. janúar sl. er aðeins gert ráð fyrir að fimm eða sjö hæstaréttardómarar skipi dóm en málinu sem var flutt í dag var áfrýjað til réttarins fyrir það tímamark.

Hinn 11. september 1996 var mál í fyrsta sinn flutt í Hæstarétti fyrir þremur dómurum eftir að rétturinn flutti í dómhúsið við Arnarhól. Það mál dæmdu hæstaréttardómararnir Arnljótur Björnsson, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson en aðstoðarmaður dómara í málinu var Benedikt Bogason nú hæstaréttardómari. Þess má geta að tveir síðastnefndu dómararnir sem dæmdu það mál sitja einnig í dómi í því máli sem flutt var í morgun ásamt Viðari Má Matthíassyni hæstaréttardómara.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í málflutningnum að þessu tilefni en málið fluttu lögmennirnir Sveinn Sveinsson og Ívar Pálsson.