Deilt um byggingu súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju í Vogum

Í dag kvað Hæstiréttur upp dóma í tveimur málum sem rekin voru samhliða um kröfur S o.fl. vegna súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju sem einkahlutafélag hugðist reisa í sveitarfélaginu Vogum. Í öðru málinu var þess krafist að felld yrði úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins um að staðfesta deiliskipulagsbreytingu fyrir iðnaðarsvæðið þar sem verksmiðjan skyldi rísa, en í hinu málinu var gerð krafa um að þrjú byggingarleyfi sem sveitarfélagið hafði gefið út vegna byggingar verksmiðjunnar yrðu felld úr gildi. Byggt var á ýmsum málsástæðum í báðum málum, m.a. því að deiliskipulagsbreytingin hefði ekki sætt umhverfismati og hún bæði gerbreytt eðli deiliskipulagsins og eyðilagt innra samræmi þess. Þá hefði ekki verið lögð fram fullnægjandi áætlun um stórslysavarnir. Héraðsdómur féllst ekki á kröfur S o.fl. og kvað upp sýknudóma í báðum málum. Hæstiréttur staðfesti báða dóma héraðsdóms.

Dómana í heild sinni má lesa hér og hér.