Hæstiréttur íslands
Nr. 2019-168
Lykilorð
- Áfrýjunarleyfi
- Ráðningarsamningur
- Kjarasamningur
- Vinnulaun
- Tómlæti
- Samþykkt
Ákvörðun Hæstaréttar.
Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson.
Með beiðni 10. maí 2019 leitar Suðurverk hf. eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 12. apríl sama ár í málinu nr. 602/2018: Viktor Spirk gegn Suðurverki hf., á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Viktor Spirk leggst gegn beiðninni.
Mál þetta lýtur að kröfu gagnaðila um greiðslu vegna frítökuréttar sem hann kveðst hafa notið samkvæmt kjarasamningi í starfi hjá leyfisbeiðanda en ekki getað nýtt sér. Héraðsdómur sýknaði leyfisbeiðanda af kröfu gagnaðila en Landsréttur komst að öndverðri niðurstöðu. Vísaði Landsréttur til þess að gagnaðili hefði ekki getað fullnægt þeim skyldum sem á honum hafi hvílt samkvæmt ráðningarsamningi án þess að hann viki reglulega frá daglegum hvíldartíma sínum. Hafi hann því ekki notið þeirrar lágmarkshvíldar sem kveðið væri á um í 1. mgr. 53. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og kjarasamningi, en á þessu hafi leyfisbeiðandi borið ábyrgð. Beiðni sinni til stuðnings vísar leyfisbeiðandi einkum til þess að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi vegna óvissu í réttarframkvæmd um áhrif tómlætis starfsmanna um að hafa uppi athugasemdir um tilhögun og greiðslu launa. Þá telur leyfisbeiðandi að úrslit málsins varði mikilvæga hagsmuni sína og bersýnilegt að dómur Landsréttar sé efnislegar rangur.
Að virtum gögnum málsins verður að líta svo á að dómur í máli þessu myndi hafa fordæmisgildi um áhrif tómlætis starfsmanns um að hafa uppi athugasemdir um tilhögun og greiðslu launa sinna. Er því beiðni um áfrýjunarleyfi tekin til greina.