Hæstiréttur íslands
Nr. 2019-369
Lykilorð
- Kæruleyfi
- Frávísun
- Kæruheimild
- Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.
Með beiðni 20. desember 2019 leitar Leigulistinn ehf. eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar 6. sama mánaðar í málinu nr. 761/2019: Leigulistinn ehf. gegn Regus Group Services Ltd., á grundvelli 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Regus Group Services Ltd. leggst gegn beiðninni.
Mál þetta lýtur að kröfu leyfisbeiðanda um að gagnaðila verði gert að greiða honum 50.000 evrur á grundvelli samnings gagnaðila við fyrirsvarsmann leyfisbeiðanda um tiltekna ráðgjöf og þjónustu. Héraðsdómur vísaði málinu frá með þeim rökum að aðilar samningsins hefðu samið um að ágreiningur vegna hans heyrði undir lögsögu enskra dómstóla, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu með framangreindum úrskurði. Leitar leyfisbeiðandi kæruleyfis til að fá hnekkt frávísun málsins frá héraðsdómi.
Samkvæmt a. lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991, sbr. lög nr. 76/2019 sem tóku gildi 14. júní 2019, er heimilt án leyfis að kæra til Hæstaréttar úrskurði Landsréttar ef þar hefur verið mælt fyrir um frávísun máls frá héraðsdómi eða Landsrétti ef ekki er um að ræða staðfestingu á slíkri dómsathöfn héraðsdóms. Getur úrskurður Landsréttar samkvæmt því sætt kæru til Hæstaréttar ef þar hefur verið tekin ákvörðun um að vísa máli frá héraðsdómi sem ekki hefur fyrr verið gert. Á hinn bóginn sætir úrskurður Landsréttar ekki kæru til Hæstaréttar eftir framangreindri heimild ef þar hefur verið staðfestur úrskurður héraðsdóms um frávísun svo sem hér er um að ræða.
Samkvæmt 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991, sem leyfisbeiðandi vísar til í umsókn sinni, er unnt að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurði Landsréttar þegar svo er fyrir mælt í öðrum lögum. Þar er ekki að finna heimild til að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar þar sem staðfest er niðurstaða héraðsdóms um að vísa máli að hluta eða öllu leyti frá dómi. Þegar af þessari ástæðu er beiðni um kæruleyfi hafnað.