Hæstiréttur íslands
Nr. 2019-155
Lykilorð
- Kæruleyfi
- Nauðungarsala
- Frávísun
- Kæruheimild
- Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar.
Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson.
Með beiðni 17. apríl 2019 leitar Kristján Þorsteinsson eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar 2. sama mánaðar í málinu nr. 142/2019: Kristján Þorsteinsson gegn Húsvakri ehf., Landsbankanum hf., Reykjavíkurborg, Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf. og tollstjóra á grundvelli 2. mgr. 79. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu, sbr. 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Húsvakur ehf., Landsbankinn hf., Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur – vatns- og fráveita sf. og tollstjóri eiga þess ekki kost að láta málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Mál þetta á rætur að rekja til þess að leyfisbeiðandi leitaði 15. október 2018 úrlausnar héraðsdóms um gildi ákvörðunar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 2. sama mánaðar um að hafna nánar tilgreindri kröfu sem leyfisbeiðandi bar upp við nauðungarsölu á fasteign að Meðalholti 3 í Reykjavík. Með úrskurði 17. janúar 2019 vísaði héraðsdómur málinu frá dómi sökum þess að leyfisbeiðandi hafi ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr dómkröfu sinni. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu með fyrrnefndum úrskurði. Leitar leyfisbeiðandi kæruleyfis til að fá því hnekkt að málinu hafi verið vísað frá héraðsdómi.
Samkvæmt a. lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 er heimilt án leyfis að kæra til Hæstaréttar úrskurð Landsréttar ef þar hefur verið mælt fyrir um frávísun máls frá héraðsdómi eða Landsrétti. Getur úrskurður Landsréttar samkvæmt því sætt kæru til Hæstaréttar ef þar hefur verið tekin ákvörðun um að vísa máli frá héraðsdómi sem ekki hefur fyrr verið gert. Á hinn bóginn sætir úrskurður Landsréttar ekki kæru til Hæstaréttar eftir framangreindri heimild ef þar hefur verið staðfestur úrskurður héraðsdóms um frávísun, svo sem hér er um að ræða, sbr. dóm Hæstaréttar 13. júní 2018 í máli nr. 15/2018.
Samkvæmt 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 sem leyfisbeiðandi vísar til í umsókn sinni er unnt að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurði Landsréttar þegar svo er fyrir mælt í öðrum lögum. Hvorki er í lögum nr. 90/1991 né öðrum lögum kveðið á um heimild til að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar þar sem staðfest er niðurstaða héraðsdóms um að vísa máli um nauðungarsölu að hluta eða öllu leyti frá dómi, sbr. meðal annars ákvörðun Hæstaréttar 27. febrúar 2019 í máli nr. 2019-77. Þegar af þessari ástæðu er beiðni um kæruleyfi hafnað.