Hæstiréttur íslands
Nr. 2025-180
Lykilorð
- Kæruleyfi
- Umferðarréttur
- Veiðifélag
- Lax- og silungsveiði
- Lögbann
- Samþykkt
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Skúli Magnússon.
2. Með beiðni 12. desember 2025 leita Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir, Loftur Ingólfsson, Guðrún Bríet Gunnarsdóttir, Jóhann Hjartarson, Jóhann Ámundason, Óskar Þorsteinsson, Hólmfríður Ingólfsdóttir, Vilhjálmur Skarphéðinsson, Bríet Þorsteinsdóttir, Guðmundur Ingólfsson, Þórður Þorsteinsson, Bergljót Þorsteinsdóttir, Hrefna Gunnarsdóttir, Gerður Beta Jóhannsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ómar Feykir Sveinsson, Árni Gunnar Sveinsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Anna María Ámundadóttir, Logi Fannar Sveinsson, Ámundi Rúnar Sveinsson, Erna Þórisdóttir, Guðmundur Þorbjörn Harðarson, Guðrún Haraldsdóttir, Kristján Harðarson, Helgi Ágústsson, Þórður Guðmannsson, Marinó Már Magnússon, Sveinbjörn Úlfarsson, Venný R. Sigurðardóttir, Guðrún Kristín Þórisdóttir, Agla Ragna Úlfarsdóttir, Gunnar Steinn Úlfarsson og Friðþjófur Adolf Ólason leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 35. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl., sbr. 5. mgr. 91. gr. laga nr. 90/1989 um aðför og 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 2. desember sama ár í máli nr. 679/2025: Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir, Loftur Ingólfsson, Guðrún Bríet Gunnarsdóttir, Jóhann Hjartarson, Jóhann Ámundason, Óskar Þorsteinsson, Hólmfríður Ingólfsdóttir, Vilhjálmur Skarphéðinsson, Bríet Þorsteinsdóttir, Guðmundur Ingólfsson, Þórður Þorsteinsson, Bergljót Þorsteinsdóttir, Hrefna Gunnarsdóttir, Gerður Beta Jóhannsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Ómar Feykir Sveinsson, Árni Gunnar Sveinsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Anna María Ámundadóttir, Logi Fannar Sveinsson, Ámundi Rúnar Sveinsson, Erna Þórisdóttir, Guðmundur Þorbjörn Harðarson, Guðrún Haraldsdóttir, Kristján Harðarson, Helgi Ágústsson, Þórður Guðmannsson, Marinó Már Magnússon, Sveinbjörn Úlfarsson, Venný R. Sigurðardóttir, Guðrún Kristín Þórisdóttir, Agla Ragna Úlfarsdóttir, Gunnar Steinn Úlfarsson og Friðþjófur Adolf Ólason gegn Finni Birni Harðarsyni. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.
3. Mál þetta lýtur að kröfu leyfisbeiðenda um að felld verði úr gildi ákvörðun sýslumannsins á Suðurlandi og lagt fyrir hann að leggja lögbann á gagnaðila þess efnis að honum verði bannað að aka á vélknúnum ökutækjum um einkaveg leyfisbeiðenda í landi þeirra, Iðu I og Iðu II í Bláskógarbyggð, eða fela öðrum slíkan akstur og rjúfa til þess keðjulæsingar á veghliði. Umræddur vegur liggur frá Skálholtsvegi, þjóðvegi númer 31, um 500 metra frá Iðubrú við Hvítá til suðausturs og er nefndur Veiðivegur. Leyfisbeiðendur eru skráðir eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð og félagsmenn í Stóru-Laxárdeild sem starfar sem deild innan Veiðifélags Árnesinga. Gagnaðili er fyrirsvarsmaður Bergsnasar ehf. sem er leigutaki veiðiréttar í Stóru-Laxá til tíu ára samkvæmt samningi við Stóru-Laxárdeild 13. desember 2021.
4. Með úrskurði Landsréttar var staðfestur úrskurður héraðsdóms um að hafna því að fella úr gildi ákvörðun sýslumanns um höfnun lögbannskröfu leyfisbeiðenda. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að verulegur ágreiningur væri til staðar um ráðstöfun stangveiði á því svæði þar sem jarðir sóknaraðila liggja, en gagnaðili leiddi veiðirétt sinn af leigusamningi við Stóru-Laxárdeild. Sá ágreiningur væri ekki til lykta leiddur og ekki yrði ráðið af gögnum málsins hvort og með hvaða hætti gagnaðili gæti komist að þeim veiðistöðum sem féllu undir samninginn án þess að fara um þann veg sem krafa leyfisbeiðenda lyti að. Að því virtu var hvorki talið að leyfisbeiðendur hefðu sannað né gert sennilegt að háttsemi gagnaðila bryti eða myndi brjóta gegn lögvörðum rétti þeirra í skilningi laga nr. 31/1990.
5. Leyfisbeiðendur byggja á því að kæruefnið varði mikilsverða almannahagsmuni og hafi fordæmisgildi um skilyrði lögbanns. Þannig skuli sýslumaður meta hagsmuni aðila til bráðabirgða, sbr. 2. tölulið 3. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990, sem sýslumaður og dómstólar hafi ekki gert. Byggja þeir á því að úrskurður Landsréttar sé þannig bersýnilega rangur að efni til. Hafi Landsréttur verið í villu um grundvöll lögbanns. Þá sé í úrskurði Landsréttar vísað til Stóru-Laxárdeildar veiðifélags Árnesinga sem veiðifélags þótt deildin sé ekki slíkt félag að lögum.
6. Að virtum gögnum málsins verður að líta svo á að dómur í því geti haft fordæmisgildi um skilyrði lögbanns. Beiðni um kæruleyfi er því samþykkt.