Hæstiréttur íslands
Nr. 2020-86
Lykilorð
- Kæruleyfi
- Dómkvaðning matsmanns
- Yfirmat
- Kæruheimild
- Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Ingveldur Einarsdóttir og Karl Axelsson.
Með beiðni 12. mars 2020 leitar Gerður Garðarsdóttir eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar 9. mars sama ár í máli nr. 23/2020: Gerður Garðarsdóttir gegn Magnúsi Þór Indriðasyni. Vísar leyfisbeiðandi í því sambandi til 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 2. málslið 5. mgr. 91. gr. laga um aðför nr. 90/1989. Magnús Þór Indriðason leggst gegn beiðninni.
Mál þetta lýtur að kröfu leyfisbeiðanda um að framangreindur úrskurður Landsréttar verði felldur úr gildi og að synjað verði um dómkvaðningu yfirmatsmanna samkvæmt 64. gr. laga nr. 91/1991 til að endurmeta niðurstöðu dómkvaddra matsmanna. Með úrskurði Landsréttar var staðfestur úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu gagnaðila um dómkvaðningu yfirmatsmanna. Leitar leyfisbeiðandi kæruleyfis til að fá þeirri niðurstöðu hnekkt.
Samkvæmt 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 er unnt að leita leyfis Hæstaréttar til að kæra úrskurði Landsréttar þegar svo er fyrir mælt í öðrum lögum. Hvorki er í lögum nr. 91/1991 né öðrum lögum kveðið á um heimild til að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar um það efni sem hér um ræðir. Þegar af þessari ástæðu er beiðni um kæruleyfi hafnað.