Hæstiréttur íslands
Nr. 2019-77
Lykilorð
- Kæruleyfi
- Frávísun
- Kæruheimild
- Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar.
Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson.
Með beiðni 20. febrúar 2019 leita Akurholt ehf. og Geiteyri ehf. eftir leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar 8. sama mánaðar í málinu nr. 69/2019: Akurholt ehf. og Geiteyri ehf. gegn Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og Arnarlaxi ehf. á grundvelli 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Arnarlax ehf., Matvælastofnun og Umhverfisstofnun leggjast gegn beiðninni.
Mál þetta lýtur að kröfum leyfisbeiðenda um að felld verði úr gildi rekstrar- og starfsleyfi sem Matvælastofnun og Umhverfisstofnun veittu Arnarlaxi ehf. til reksturs stöðva til sjókvíaeldis í Arnarfirði. Héraðsdómur vísaði málinu frá dómi með þeim rökum að leyfisbeiðendur hefðu ekki sýnt fram á að þeir hefðu lögvarða hagsmuni af því að fá leyst úr dómkröfum sínum. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu með framangreindum úrskurði. Leita leyfisbeiðendur kæruleyfis til að fá því hnekkt að málinu hafi verið vísað frá héraðsdómi.
Samkvæmt a. lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 er heimilt án leyfis að kæra til Hæstaréttar úrskurði Landsréttar ef þar hefur verið mælt fyrir um frávísun máls frá héraðsdómi eða Landsrétti. Getur úrskurður Landsréttar samkvæmt því sætt kæru til Hæstaréttar ef þar hefur verið tekin ákvörðun um að vísa máli frá héraðsdómi sem ekki hefur fyrr verið gert. Á hinn bóginn sætir úrskurður Landsréttar ekki kæru til Hæstaréttar eftir framangreindri heimild ef þar hefur verið staðfestur úrskurður héraðsdóms um frávísun, svo sem hér er um að ræða, sbr. dóm Hæstaréttar 13. júní 2018 í máli nr. 15/2018.
Samkvæmt 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991, sem leyfisbeiðendur vísa til í umsókn sinni, er unnt að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurði Landsréttar þegar svo er fyrir mælt í öðrum lögum. Hvorki er í lögum nr. 91/1991 né öðrum lögum kveðið á um heimild til að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar þar sem staðfest er niðurstaða héraðsdóms um að vísa máli að hluta eða öllu leyti frá dómi, sbr. ákvörðun Hæstaréttar 9. janúar 2019 í máli nr. 2018-267. Þegar af þessari ástæðu er beiðni um kæruleyfi hafnað.