Hæstiréttur íslands
Nr. 2019-89
Lykilorð
- Áfrýjunarleyfi
- Börn
- Forsjá
- Umgengni
- Sáttameðferð
- Meðdómsmaður
- Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar.
Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson.
Með beiðni 20. febrúar 2019 leitar M eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar 1. sama mánaðar í málinu nr. 554/2018: M gegn K og gagnsök, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. K leggst gegn beiðninni.
Mál þetta lýtur að ágreiningi um forsjá sonar aðila en héraðsdómur tók til greina kröfu gagnaðila um að hún skyldi fara með forsjána til 18 ára aldurs drengsins. Þá kvað dómurinn jafnframt á um hvernig umgengni hans við leyfisbeiðanda skyldi háttað, svo og um skyldu leyfisbeiðanda til að greiða meðlag með honum. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um forsjána og greiðslu meðlags og kvað einnig á um umgengni.
Leyfisbeiðandi rökstyður beiðni sína með því að meðferð málsins á fyrri dómstigum hafi verið ábótavant. Í fyrsta lagi hafi héraðsdómi og Landsrétti borið að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem ekki hafi farið fram fullnægjandi sáttameðferð samkvæmt 1. mgr. 33. gr. a. barnalaga nr. 76/2003. Í öðru lagi hafi Landsrétti borið að ómerkja héraðsdóm þar sem dómendur í héraði hafi við meðferð málsins sýnt af sér nánar tilgreinda háttsemi svo að réttmætt sé að draga óhlutdrægni þeirra í efa. Loks hafi skipan héraðsdóms verið andstæð niðurstöðu í dómi Hæstaréttar 27. febrúar 2019 í máli nr. 26/2018 þar sem því hafi verið slegið föstu að samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991, eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 49/2016, eigi ekki að kveðja tvo sérfróða meðdómendur til setu í dómi, en í héraði sátu tveir sálfræðingar í dómi ásamt einum embættisdómara. Leyfisbeiðandi vísar einnig til þess að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi og varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína. Þá telur hann að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til.
Samkvæmt 78. gr. laga nr. 49/2016 tóku þau gildi 1. janúar 2018. Sérfróðir meðdómendur voru kvaddir til setu í héraðsdómi 22. desember 2017 og gilti því breytt ákvæði 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/1991 ekki um skipan dómsins. Ekki verður séð að meðferð málsins fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi að öðru leyti verið svo ábótavant að uppfyllt séu skilyrði 3. málsliðar 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Að virtum gögnum málsins er ekki heldur unnt að líta svo á að úrslit þess geti talist hafa fordæmisgildi svo einhverju nemi umfram dómsúrlausnir sem áður hafa gengið. Verður jafnframt að gæta að því að þótt málið varði mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda er svo einnig ástatt endranær í málum sem varða forsjá barna og önnur skyld málefni þeirra, en ekki verður séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni til. Er beiðni um áfrýjunarleyfi því hafnað.