Heimsókn frá European Law Students' association (ELSA) Helsinki

14.11.2022

Í vikunni sem leið fékk Hæstiréttur heimsókn frá finnskum laganemum á vegum ELSA Helsinki ásamt íslenskum gestgjöfum þeirra. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, og Linda Ramdani, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim. Kynntu þau starfsemi réttarins og íslenskt réttarkerfi og svöruðu spurningum.

Myndin var tekin við þetta tækifæri.