image

Forseti Mannréttindadómstóls Evrópu heimsækir Hæstarétt

07.12.2020

Forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, Róbert Spanó, heimsótti Hæstarétt í dag og átti fund með dómurum, skrifstofustjóra og aðstoðarmönnum réttarins. Róbert fjallaði einkum um störf Mannréttindadómstólsins og vék hann þá meðal annars að hlutverki sínu sem forseta dómstólsins. Einnig gerði hann grein fyrir fjölda þeirra mála frá Íslandi sem nú eru til meðferðar hjá dómstólnum.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin af þessu tilefni.