Heimsókn Hæstaréttar til Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
11.11.2025
Í liðinni viku heimsótti starfsfólk Hæstaréttar embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til að fræðast um starfsemi þess. Á móti gestunum tóku Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri og nokkrir samstarfsmenn hennar. Þau gerðu grein fyrir störfum embættisins og fjölluðu um málafjölda og þróun afbrota á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þess sem kom fram í máli þeirra var að langflest brot gegn almennum hegningarlögum væru framin í umdæminu en þessi mál væru þyngst í rannsókn. Einnig var rætt um forgangsröðun innan lögreglu sem skilað hefði miklum árangri svo sem við að stytta afgreiðslu mála sem vörðuðu börn. Jafnframt kom fram að málaskrákerfi lögreglu skapaði góða yfirsýn yfir afgreiðslu mála og auðveldaði eftirlit til að koma í veg fyrir drátt á málsmeðferð. Þannig væri unnt að mæla árangur og bregðast við eftir því sem efni væru til. Myndin var tekin við þetta tækifæri.
