Forsætisráðherra heimsækir Hæstarétt

Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, heimsótti Hæstarétt í dag ásamt fylgdarliði og kynnti sér starfsemi réttarins. Er þetta í fyrsta skipti sem forsætisráðherra heimsækir réttinn í þessum tilgangi. Í heimsókninni var rætt um starfsemi réttarins allt frá stofnun hans árið 1920 og þá sérstaklega hvaða breytingar ný dómstólaskipan, sem tók gildi 1. janúar 2018, hefur á starfsemi Hæstaréttar. Með þeim breytingum tók Landsréttur við hlutverki Hæstaréttar sem áfrýjunardómstóll en Hæstiréttur dæmir einungis í fordæmisgefandi málum. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. dómstólalaga taka að jafnaði þrír dómarar Hæstaréttar ákvörðun um veitingu áfrýjunarleyfis og hvort kæra verði tekin til meðferðar. Meðal þess sem fram kom í heimsókn forsætisráðherra var að á árinu 2018 hefði Hæstiréttur gegnt tvöföldu hlutverki, annars vegar að ljúka þeim málum sem til hans var skotið samkvæmt eldri dómstólaskipan en þau voru 270 talsins, og hins vegar að innleiða breytt verklag í nýrri dómstólaskipan. Þá kom fram að Hæstarétti hefði á árinu 2018 borist 64 beiðnir um áfrýjunar- og kæruleyfi. Um áramót hefðu 54 beiðnir verið afgreiddar og fallist á að veita leyfi í 10 tilvikum sem er 18,5% hlutfall. Til samanburðar má geta þess að Hæstarétti Noregs bárust 800 beiðnir á árinu 2017 um leyfi til áfrýjunar dóma og var leyfi veitt í 114 tilvikum sem er 14,25% hlutfall. Dómarar í Hæstarétti Íslands eru 8 en 20 í Hæstarétti Noregs.