Vettvangsganga

Stundum háttar þannig til við rekstur mála fyrir Hæstarétti, einkum landamerkjamála, að talið er nauðsynlegt að fara á vettvang til að fá sem gleggsta mynd af því máli sem rekið er hverju sinni. Þannig háttaði til 26. september 2017 að dómendur ásamt lögmönnum og hluta af aðilum máls fóru á vettvang í máli er varðaði ágreining um landamerki milli jarðanna Ystafells 1 og 2 og Fellssels í Þingeyjarsveit. Í vettvangsgöngum sem þessari er gengið á þau landamerki sem aðila greinir á um, staðhættir skoðaðir og aðstæður að öðru leyti.

Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu í dag þar sem fallist var á kröfur eigenda Ystafells 1 og 2 með vísan til þess að óhætt væri að miða við að vörður í þeirra kröfulínu væru þær vörður sem miðað væri við í landamerkjabréfum jarðanna frá þjóðvegi og að Setbergsvörðu. Þá þótti kröfulína þeirra úr þeim punkti og í Skjálfandafljót vera í eðlilegu framhaldi fyrrnefndu línunnar auk þess sem hún samrýmdist betur tilvísun í landamerkjabréfum jarðanna til austurmarka þeirra.

Dóminn í heild sinni má lesa hér.